Tinna Rut

líf mitt í danaveldi...

11.09.2010 18:59:18 / rutla

Ný síða

Já ég lét verða af því að búa til nýja bloggsíðu. Ég vona að ég verði duglegri að skrifa þar inn en ég hef verið undanfarið á þessari síðu, en ég lofa engu.
Ef þig langar að fylgjast með mér getur þú farið inn á tinnslab.blogspot.com 

Kv. Tinna Rut


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.04.2010 07:39:44 / rutla

nokkur orð...

Það er voðalega lítið búið að gerast hérna hjá okkur síðan ég skrifaði seinast. Ernir er alltaf í skólanum og ég að vinna. Vinnan gegur sæmilega. Ég er mest í því að færa bakkelsið yfir á hreinar plötur eftir að það hefur verið bakað og koma því upp í búðina. Set krem á kökur og passa að það sé alltaf nóg af rúnstykkjum í búðinni. Búðin er á hæðinni fyrir ofan svo ég fæ nóg af hreyfingu við það að fara upp og niður stigann. Þarf þó ekki að bera allt upp þar sem að það er lítil lyfta sem við getum sett bakkelsið inn í. 

Vikurnar fyrir páska voru pínu erfiðar þar sem að ég fór bein í skólann eftir vinnu til þess að æfa fyrir Búdapestferðina sem er á miðvikudaginn næsta. Það er allt að verða klárt, en ætli ég þurfi ekki að æfa mig aðeins meira næstu daga. Ég er orðin pínu spennt, en er þó ferlega afslöppuð yfir þessu öllu saman. Stundum kannski of afslöppuð, en ætli stressið hellist ekki yfir mig á miðvikudaginn þegar við leggjum af stað. En mitt markmið er að hafa gaman af þessu og auðvitað að gera mitt besta. Ég kem svo heim aftur á sunnudeginum og ég held að það verði ótrúlega gott að koma aftur heim....

Karólína frænka Ernis kom til Didda vikuna fyrir páska. Það var ótrúlega gaman að fá hana hingað þó svo að ég hafi kannski ekki hitt hana allt of mikið þar sem að ég þurfti að vinna og svo æfa fyrir Búdapest. En ég náði þó að fara með henni í verslunarferð, þar sem að ég eyddi örugglega mesta peningnum :s Við kiktum líka í bæinn, í pool og keilu. 
Nú bíðum við bara spennt efitr næstu gestum sem eru væntanlegir í byrjun júní :D

Nú held ég að sumarið sé allveg að verða komið til okkar. Það er búið að vera sól og blíða síðustu daga. Blómin eru farin að springa út og arfinn farinn að láta sjá sig í beðinu. Núna þarf maður að fara að gera garðinn fínann, bera í garðhúsgögnin og kannski maður láti undan lönguninn og kaupi sér blómapott og blóm. 
Með sólinni kemur líka þessi löngun að taka allt í gegn á heimilinu. Þrífa allt og gera fínt. Ég veit ekki hvort það eru fleiri sem hugsa svona, kannski er ég bara svona skrítin. En ég er komin í sumarfíling og bíð spennt eftir því að það verði aðeins hlírra úti....

En jæja ætli það sé ekki best að ég komi mér í að gera eitthvað hérna heima. Ég skrifa aftur eftir að ég kem heim frá Búdapest. Og ætli það komi ekki inn nokkrar myndir þá.

Knús á ykkur
kv. Tinna Rut 

» 11 hafa sagt sína skoðun

08.03.2010 10:15:34 / rutla

Betra er seint en aldrei...

...eða er það ekki svo??

Það er svo langt síðan ég hef skrifað eitthvað hérna inn, finnst pínu skrítið núna að vera að blogga. En það er allt í lagi. :D

Það er margt búið að gerast síðan í nóvember. Ég kláraði grunnnámið í skólanum. Fékk hæstu einkunn fyrir lokaverkefnið mitt sem saman stóð af ritgerð, kransakökuhjarta og kynningu fyrir framan kennarann minn og prófdómara. Var ótrúlega ánægð enda ætlaði ég mér að fá gott fyrir þetta verkefni. Fannst þó skemmtilegast að þegar ég kom út úr stofunni eftir að hafa verið með kynninguna, þá voru tveir gamlir menn frammi á gangi. Ég hélt á kransakökuhjartanu mínu og þeir dáðust að því, sérstaklega sá eldri. En hann sagði bara góða hluti um kökuna. Ég komst svo að því að þetta eru gamlir bakarar sem eru komnir á eftirlaun, mér fannst þetta frábært :D

Ég fór heim til Íslands í jólafrí. Fannst yndislegt að vera heima með fjölskyldunni og væri alveg til í að fara fljótlega heim aftur. En ég er ekki alveg að sjá það gerast, er ekkert viss um að ég komist heim í sumar. 
Ég sat hérna heima í Álaborg og gerði voðalega lítið í janúar og febrúar. Fann mér þó alltaf eitthvað til þess að gera og leiddist því ekkert. Fannst það bara gaman að fá að vera heima og gera það sem mig langaði. En maður lifir nú víst ekki á því, einhversstaðar verður maður að fá peninga.

Í desember fór ég og talaði við einn konditor hérna í nágreninu. Hann var ekki viss um hvort hann vantaði lærling. Hann sagði að hann gæti gefið mér svar í miðjan janúar. Ég ákvað því að bíða eftir því svari þar sem að ég var hvort eð er að fara heim til Íslands í jólafrí. En þegar kom framm í miðjan janúar var þessi maður enn mjög óákveðinn og gat ekki gefið mér svar. Hann var mjög á báðum áttum og vissi ekkert hvað hann ætti að gera, hvað væri best fyrir fyrirtækið og allt það. Við Diddi, frændi Ernis, sem hjálpaði mér við þetta alltsaman ákváðum því að leita annað. Enda sagði konditorinn okkur eiginlega að gera það. Ég fékk svo samning sem bakari í flottu bakaríi í Nørresundby sem er hinumegin við Limfjörðinn, en samt hluti af Álaborg. Ég byrjaði að vinna þar 1. mars og er því búin að vera þar í rúma viku. Fyrsti dagurinn var erfiður, næsti var betri og þar næsti enþá betri. Núna veit ég svona nokkurnvegin hvernig ég á að gera hlutina. En ég er þó mest búin að vera í því að færa yfir á hreinar plötur, setja glassúr á vínabrauð og sjá um uppvaskið ásamt öðrum. Er þó búin að fá að hjálpa aðeins til við að gera rjómakökur og svona. Finnst þetta allt í lagi, en er þó á báðum áttum með þetta svo ég sé alveg hreinskilin. Mér finnst vinnutíminn ekki sá skemmtilegasti og á það ekkert voðalega vel við mig að leggja mig á daginn. En ég verð samt að gefa þessu lengri séns þar sem að ég er nú bara búin að vera þarna í viku. Ég hef þrjá mánuði til þess að ákveða mig hvort ég vilji halda áfram eða ekki. Og sama gildir um meistarann minn, hann hefur þrjá mánuði til þess að ákveða hvort hann vilji hafa mig í vinnu. 

Í síðustu viku hringdi kennarinn minn úr skólanum í mig. Hún var að biðja mig eða bjóða mér að fara til Búdapest fyrir hönd skólanns og taka þátt í kökuskreytingakeppni. Ég varð mjög hissa og vissi ekkert hvað ég átti að segja. En eftir að hún var búin að sanfæra mig um að ég gæti þetta alveg þá ákvað ég að slá til. Hlakka ótrúlega mikið til en veit þó ekkert út í hvað ég er að fara. Eina sem ég veit um þetta er að ég á að baka eina stóra köku og eina litla svo að dómararnir geti smakkað. Held samt að hún hafi sagt að kreytingarnar séu aðal, en þar sem að hún var að vekja mig, var ég hálf sofandi þegar ég var að tala við hana og náði ekki öllu sem hún var að segja. Hugurinn fór líka á fullt á meðan hún var að tala við mig. Þemað er skírn fyrir stelpu svo núna verð ég bara að fara að ákveða hvað ég eigi að gera og æfa mig. En kennarinn ætlar að hjálpa mér að ákveða hvernig þetta á að vera. Núna bíð ég bara eftir því að hún hringi aftur í mig.
Ég er eini bakaraneminn sem fer. En það fara líka þjónanemi og kokkanemi og svo kennarinn minn og einhver annar kennari. Við förum til Búdapest 14. apríl. Þetta er allt ótrúlega spennandi og ég hlakka mikið til.

Annars er voðalítið að gerast hjá okkur. Mig er farið að langa í sumarið, og er ég viss um að það sé alveg að koma. Vorið er í loftinu hehe og snjórinn er að hverfa :D Ég allavega vil ekki fá meiri snjó þar sem að þá verður erfiðara að hjóla í vinnuna.
Ég er búin að setja inn myndir á myndasíðuna mína. Þið finnið línk á hana hérna til vinstri. Myndavelin hefur því miður ekki verið of mikið á lofti, en vonadi fer ég að vera duglegri við það.

Vona að þið hafið það sem allra best
kv. Tinna Rut

» 13 hafa sagt sína skoðun

24.11.2009 21:50:06 / rutla

Jólalög og norskar kleinur

Já ég veit að það er allt of langt síðan ég skrifaði hérna inn. Og það eru örugglega allir löngu hættir að kíkja á þessa síðu mína. Ég hugsa þó um það að blogg nánast á hverjum degi.....en það er víst ekki nóg að hugsa um það, það verður að framkvæma það líka. Svo ég lét verða af því núna, þreytt og bíð eftir því að klukkan verði nogu margt til þess að ég geti farið að sofa.
Á reyndar að vera að læra, en er bara ekki að hafa mig í það núna....eins og svo oft áður :S

Skólinn gegnur ágætlega. Ég á bara eftir að gera lokaverkefnið mitt og fara svo í próf upp úr því. Og eins og svo oft áður er ég á seinasta snúningi með þetta allt saman. Er alltaf að sanna það fyrir sjálfri mér að ég vinni best undir pressu. Eða kannski bara að ég trassi hlutina alltaf fram á seinasta snúninga. Jafnvel þannig að ég þurfi að hafa mig alla við að halda mér vakandi langt fram á kvöld og jafnvel vel yfir miðnætti. En ég ætla ekki að láta það gerast núna:!: Núna verður sko tekið á því og lært á hverjum degi eftir skóla. Er reindar búin að vera ótrúlega dugleg síðustu daga. Og verkefnalistinn minkar óðum:D 

Það styttist í jólin. Einn mánuður. Jólaskapið er að koma afur eftir að ég ákvað að bæla það niður í byrjun nóvember. En núna er ég tilbúin að taka á móti jólaskapinu smátt og smátt, svona á meðan ég er að gera lokaverkefnið. Annars er svolítið síðan ég fór að hlusta á jólalögin. Stilli yfirleitt á léttbylgjuna í tölvunni þegar ég kem heim úr skólanum. Finnst það æði, það er líka svo þæginlegt að hlusta á þessa stöð. Og svo auðvelt að læra undir þessari tónlist:D
Mig er farið að langa til þess að föndra eitthvað skemmtilegt jólaföndur. Föndurdótið mitt liggur ofan í skúffu enþá. Ætla kannski að leifa mér að föndra pínu um helgina. Langar líka að baka smákökur, gera jólaþrif og skreyta. Held samt að það verði nú kannski ekki neitt of mikið um skraut, en þó smá. En bara ef ég verð dugleg í vikunni að læra, þá má ég gera eitthvað skemmtilegt inn á milli. Var búin að ákveða að læra eins mikið og ég get í nóvember svo ég geti notið þess betur að vera í jólaskapi í desember. Vona að það gangi eftir....
Ég er farin að hlakka svolítið til þegar að skólinn klárast. Veit samt ekkert hvað tekur við. Þarf að komast á samning.... 
Ég hlakka þó mest til að koma heim til Íslands í jólafrí. Hitta alla heima og knúsast í Birgittu og Ísak Loga. Það verður æði:!::D Ernir ætlar þó ekki að koma með mér heim á klakann. Það verður pínu erfitt að skilja hann eftir hérna í Álaborginni. En Birnir verður líka hérna og þeir fá að vera hjá Didda um jólin. Svo hann verður ekki alveg einn hérna. Jólin hjá honum fara líka mikið í það að læra undir próf, en þau eru í janúar. Hann og grúbban hans eiga samt að skila verkefninu núna í lok desember. Hann hefur því verið mikið í skólanum síðustu vikur og mér skilst að það eigi eftir að aukast eitthvað. Hann segir samt að þeir séu á góðu skriði og þetta gangi bara allt vel hjá þeim:D

En annars hefur verið voðalega lítið að gerast hjá okkur. Við erum bara í skólanum og komum svo heim og gerum voða lítið. Kannski er það ástæðan fyrir því að ég skrifa ekkert hérna inn. Jú við fórum niður í bæ 30. okt. Þá kom jólabjórinn í Götuna (pöbba gatan). Þá er búið að skrayta götuna og það snjóar gerfisnjó (sem er ógeðsleg froða). Það er talið niður þegar má fara að selja jólabjórinn og jólastemningin ræður völdum. Ernir fór með grúbbunni sinni, en ég fór með Hafdísi og Kollu. Við hittum þó strákana á einum barnum og stoppuðu þeir hjá okkur í smá stund. Fyrr um kvöldið höfðu strákarnir í grúbbunni hans Ernis komið hingað heim til okkar, bara aðeins að kíkja. Það var mjög gaman að hitta þá og geta tengt nöfnin við andlitin. Ég forðaði mér þó fljótlega til Hafdísar og leifði þeim að vera í friði.
En annars held ég að það hafi ekkert merkilegt gerst hjá okkur. Jú við keyptum okkur nýjan sófa:D Það er rosalegur munur....

Jæja ég held að þetta sé komið gott í bili. Ætla ekkert að lofa með blogg næstu dagana eða vikurnar.....sjáum bara til með það....
En ég er búin að setja inn nokkrar myndir. Þær eru þó ekkert allt of margar þar sem að myndefnið er eitthvað dræmt þessa dagana.

en nú er klukkan orðin það margt að ég get farið að sofa
Hafið það gott og missið ykkur ekki í jólaskapinu alveg strax;)

kv. Tinna Rut

» 12 hafa sagt sína skoðun

16.10.2009 20:39:07 / rutla

16.október 2009

Ég held svei mér þá að það sé að koma vetur hérna í DK. Það er orðið hryllilega kallt úti. Það var allt hélað á miðvikudaginn þegar við Ernir fórum í skólannn og stelpurnar í skólanum töluðum um að hafa þurft að skafa rúðurnar á bílnum.... Ég held að dúnúlpan fari í notkun á næstu dögum....

Annars er allt fínt að frétta. Við Ernir fengum bæði langa helgi um síðustu helgi, eða fjagra daga helgi:D Það var voðalega gott að fá smá frí en frekar erfitt að komast í gang aftur. 
Það gegnur þó mjög vel í skólanum. Ég er búin að gera þrjú ritunarverkefni og fengið góða einkunn fyrir þau öll. Kennarinn sagði að nú yrði ég bara að bæta mig aðeins í skyndiprófunum, en ég á það til að fara í pínu panik og þá er erfitt að muna. Það kemur þó vonandi fljótlega....
Næst á dagskrá er "stóra" verkefnið. En við eigum að skila því í lok annar og mér skilst að við séum prófuð út frá því. Held ég verði að fara að byrja á því svo ég verði ekki á síðustu stundu með þetta allt saman.
Við vorum að gera kransakökurhjarta í vikunni og gerðum svo súkkulaði lok ofan á. Ég var mjög ánægð með mitt. Það heppnaðist mjög vel:D

Ernir hefur verið meira í skólanum en í byrjun annar. Hann er núna að vinna að P1 verkefninu með grúbbunni sinni. Hann situr því oft við tölvuna eftir að hann kemur heim og lærir. Ég verð nú að viðurkenna það að ég er ekki alveg inni í því um hvað verkefnið þeirra er. Hann var þó eitthvað að tala um að hann væri að reyna að komast að því hvað danir gerðu við afgangs rafmagn sem þeir framleiða. Og um daginn var hann eitthvað að spá í hitakúta eða hvað þetta nú heitir. Svona eins og er notað heima á Íslandi þar sem er ekki hitaveita. 
En þetta gengur bara vel hjá honum....eða allavega veit ég ekki annað.

Heimalingurinn okkar er fluttur út. Hún fór þó ekki langt, bara yfir í næsta hús. Hún ætlar að gista fyrstu nóttina í nýju íbúðinni í nótt. Það er því pínu tómlegt hérna hjá okkur, en ég held að það verði fljótt að jafna sig. 
Við Hafdís fórum svo að versla í dag. Hún átti eftir að kaupa ýmislegt inn í íbúðina, en húsgögnin koma síðar. Vonandi í næstuviku.

Við fórum í íslendingapartý á laugardaginn síðasta. Loksins fékk ég að fara út og skemmta mér. Ég var búin að hlakka svo til í marga daga og þar af leiðandi varð ég fyrir smá vonbrigðum. En þetta var nú samt bara nokkuð gaman:D 

Og nú held ég að ég sé búin að segja ykkur flest allt sem gerst hefur hjá okkur. Allavega man ég ekki eftir fleiru þessa stundina.
Ég setti inn nokkrar myndir á myndasíðuna mína sem ég vona að þið hafið gaman af.

Hafið það sem allra best
kv. Tinna Rut

» 12 hafa sagt sína skoðun

26.09.2009 13:41:56 / rutla

Það kom að því....

....að ég nennti að blogga.
Ég hef ekki alveg verið í stuði til þess að blogga síðustu daga. Tvísvar í mánuði hentar vel þó svo að mér finnist það nú aðeins of lítið:$

Það er búið að vera fínt í skólanum hjá mér. Ég er búin að baka ýmislegt skemmtilegt, gera eitt "stórt" verkefni og fara í eitt próf. Verkefnið gékk fínt og var einkunnin ekki lakari en fyrir síðasta verkefni. Prófið var ekki alveg eins gott þar sem að sumt var algjörlega dottið út úr kollinum á mér. En þetta var nú samt ekkert hræðilegt.
Síðustu tvo þriðjudaga hef ég verið í fríi í skólanum. En í staðin hef ég mætt í praktík í bakarí sem er hérna rétt hjá okkur. Ég mætti klukkan 4 á nóttunni hress og kát. Þá var verið að gera síðustu brauðin og búið að baka vínabrauðin eða morgunkökurnar eins og danirnir kalla þetta bakkelsi. Ég fékk að setja glassúrinn á. Ég fékk að gera ýmislegt annað, eins og að slétta úr rúbrauðsdegi í form (mjög klístrað deig, ekki eins og íslenskt rúbrauð), vigta hráefni í deig, raða á plötur, búa til rommkúlur og margt annað skemmtilegt. Reyndi svo að fylgjast vel með hvað þeir voru að gera á milli verkefna hjá mér.
Seinni daginn fékk ég svo að gera krannsaköku. Og svona til þess að setja enga pressu þá sagði hann mér að þetta væri fyrir skýrnarveislu barnsins hans:| Svo hvarf hann og ég varð eftir með öðrum strák sem vinnur þarna. Og gerðum við sitt hvora kranskaköku-barnavagninn. En sem betur fer vorum við að gera kransakökutopp í skólanum daginn áður, þannig að ég var aðeins búin að prófa þetta. Skemmtileg tilviljun;)
Bakarameistarinn er mjög hress og skemmtilegur strákur um þrítugt og keyrir um á vespu:D Hann sagði að honum finnist ég mjög góð í því sem ég var búin að vera að gera hjá honum og bauð mér að koma aftur seinna ef ég vildi og hefði tækifæri á því. Þannig að ég hef gert eitthvað rétt:D Vona bara að hann hafi ekki skipt um skoðun eftir að hafa séð kransakökuna mína þegar hann mætti í vinnu daginn eftir. Ekki það að mér og hinum stráknum fannst hún vera nokkuð flott miðað við annað skipti:D

Ernir er búinn að skila P0 verkefninu sínu og fara í próf upp úr því. Og auðvítað stóðst hann það. Mér skilst að þetta verkefni hafi aðalega verið til þess að koma þeim af stað i verkefna vinnu. Næsta verkefni, P1, tekur svo við. En ég held að hann verði aðeins meira í skólanum þá. Mér hefur fundist hann vera lítið í skólanum þar sem að hann hefur verið mikið heima, stundum nokkra daga í viku. 
Hann fór svo í matarboð á miðvikudaginn síðasta til eins úr grúbbunni hans. Þar voru þeir að leggja lokahönd á fyrirlesturinn þeirra og svo var dottið í það. Ernir mætti með íslenskt brennivín, en það var einn í grúbbunni hans ótrúlega spenntur fyrir því að fá að smakka það. Flaskan kom ekki með heim..... (hún var þó átekin þegar hann fór með hana).
Svo er það skólaferðalag á næsta miðvikudag hjá honum og kemur hann aftur á föstudagin. Þetta er að mér skilst fyllirísferð og svo er partý á laugardeginum eftir að þau koma heim. Fyrsta önnin snýst mikið um fyllerí og skemmtanir, hafa þeir sem lengra eru komnir í náminu sagt mér.....sjáum til hvernig það fer.

Hafdís er enn hjá okkur. En hún er þó búin að fá íbúð og fær hana afhenta 15. október. Hún ferð þó ekki langt þar sem að íbúðin er á sama kollegíi og við erum á og er staðsett hinu megin við götuna.
Skólinn gegnur, eftir því sem ég best veit, vel hjá henni. Hún fór í partý í gær og skemmti sér að mestu vel, held ég.

Þau eru því bæði búin að vera að skemmta sér og koma mis skrautleg heim. En stilta ég sit heima og horfi á sjónvarpið eða hangi í tölvunni;) Ég er þó aðeins búin að vera að gera armbönd og svo er ég búin að fá nokkrar hugmyndir af hlutum sem ég gæti saumað. Þarf endilega að fara að koma mér í það.

Annars gengur lífið bara sitt vanagang. Við erum að fara í matarboð til Arnar og Eydísar í kvöld. Mér skilst að við munum fá íslenska kjötsúpu að borða.
Myndavelin hefur ekki verið mikið á lofti þennan mánuðinn. En við reynum kannski að bæta úr því....

Vona að þið hafið það sem allra best heima á Íslandinu góða. Og að þið fáið ekki of mikinn snjó.... ;) Fannst það pínu fyndið þegar mamma hringdi til þess að segja mér að það væri allt hvítt og pabbi hefði farið í snjómokstur í staðin fyrir vegavinnu.

yfir og út og munið að kvitta;)
kv. Tinna Rut

» 14 hafa sagt sína skoðun

06.09.2009 15:57:33 / rutla

Tíminn líður stundum allt af hratt.....

Og auðvitað leið alltof langur tími á milli skrifa:| 

Það er búið að vera nokkuð mikið að gera síðan ég byrjði í skólanum. Þar að segja eftir að fyrstu tvær kynningarvikurnar voru búinar. Við fengum fyrsta verkefnið fyrsta daginn eftir að við vorum sett í hópana sem við erum í núna. Ég skilaði því svo á síðasta þriðjudag. Mér gékk bara nokkuð vel með þetta verkefni. Fór reyndar svolítill tími í þetta, en það borgaði sig greinilega þar sem að ég fékk 12 í einkun, sem er hæsta mögulega einkun hérna í DK. Mjög sátt:!: enda hæst í bekknum:D Ég fékk svo næsta verkefni daginn eftir... 
Annars erum við í bakaríinu að baka 2-3 daga í viku. Hina dagana erum við í bóklegu.
Við erum búin að vera að baka brauð, rúnstykki og svolítið af sætabrauði sem ég hef aldrei séð áður en eru víst voðlega vinsælt hérna í Danaveldi. Þetta var ýmislegt, snittur og litlar kökur. Fínt að prófa eitthvað nýtt og það vakna stundum ýmsar hugmyndir um hvað væri hægt að gera við þetta, breyta og bæta;) hehe
Það er sem sagt búið að vera nóg að gera í skólanum.

Hafdís vinkona kom til okkar 17. ágúst. Hún er enn hjá okkur og verður eitthvað áfram þar sem að hún er ekki enn komin með íbúð. Við reynum þó að vera bjartsýn og vona það besta í þeim málum þar sem að ég veit að hana er farið að langa að komast í sitt eigið.
Þau Ernir höfðu það gott í tvær vikur á meðan ég var í skólanum, sem er allt of langur tími að mínu mati;) Foreldrar Hafdísar voru líka hérna í Álaborg fyrri vikuna og fékk Ernir að bralla ýmislegt með þeim. Þau fóru til dæmis til Århús í Ikea. Þar verslaði Ernir meðal annars sófaborð og spegil sem er búinn að vera lengi á óskalistanum mínum:D Við erum að reyna að sanka að okkur svona smá saman í íbúðina.

Skólarnir byrjuðu svo hjá þeim 1. sept. Og þar með var sælan búin hjá þeim, mér til mikillar ánægju:Dhehe Ernir er loksins orðinn verkfræðinemi. Og held ég að þetta leggist bara vel í hann. Hann er núna að vinna að P0 verkefninu sem er fyrsta verkefni sem hann gerir. Hann er í skólanum til fjögur alla daga, en ég á nú alveg von á því að það verði eitthvað meira þegar fer að líða á önnina. 
Hafdís var að byrja í Pædagog námi, sem er leikskólakennari + eitthvað meira. Maður fær sem sagt svolítið meira út úr þessu námi heldur en leikskólanáminu heima á Íslandi. Ég held að henni gangi bara vel og sé spennt fyrir vetrinum.

Það var brjálað að gera hjá okkur í matarboðum í endaðan ágúst. Foreldrar Hafdísar buðu okkur í mat, heim til frænda Hafdísar, laugardaginn áður en þau fóru heim (22.ágúst). Diddi frændi Ernis bauð okkur svo í pönnukökur og mat daginn eftir. Það var verið að halda upp á afmæli Karolínu, en hún átti afmæli í sumar á meðan þau voru á Íslandi. 
Miðvikudaginn eftir var okkur svo boðið í matarboð til teingdaforeldra Didda. Ernir var var eitthvað að hjálpa þeim með rafmagnið, tengja eitthvað og færa. Við fengum steik að borða, ís í eftirrétt og svo var sætabrauð sem ég hafði gert í skólanum og Diddi komið með. En þar sem að við Ernir vorum sett í það að klára ísinn höfðum við ekki mikla matarlist eftir það. Held að ég hafi borðað hálfan líter af ís þetta kvöldið.
Örn og Eydís komu svo í matarboð til okkar á föstudeginum. Við vígðum nýja grillið okkar sem við keyptum á 100 kr í Jysk:D Eftir skrautlegar tilraunir og leiðbeiningar frá pabba, náðum við að kveikja upp í kolunum. Við áttum svo góða kvöldstund hérna saman.
Á laugardaginn fór ég svo upp til Vrå í tvítugsafmæli hjá Tinu vinkonu minni. Hún fékk lánaðan sal í lýðháskólanum sem við vorum í til þess að halda upp á afmælið sitt. Það var ótrúlega gaman að hitta krakkana aftur og spjalla aðeins við þau.
Það er sem sagt búið að vera nóg að gera í boðum hjá okkur:!:

Annar er bara allt fínt að frétta. Ég er loksins búin að fá saumavelina mína hingað út. Svo núna get ég farið að sauma:D
Veðrið er búið vera ágætt, þó aðeins of mikil rigning að mínu mati. Maður er aðeins farin að finna fyrir því að það sé að koma haust. Sérstaklega á morgnanna þegar maður er á leið í skólann.

Ég held að ég sé bara búin að segja ykkur flest allt sem við höfum verið að gera síðustu vikur. Ég allavega man ekki eftir fleiru í augnablikinu.
Set vonandi inn nokkrar myndir við tækifæri, svona þegar ég gef mér tíma í það.

Vona að þið hafið það sem allra best
kv. Tinna Rut

» 12 hafa sagt sína skoðun

15.08.2009 10:26:02 / rutla

Alvaran byrjar á mánudaginn

Smørebrød kynningin var ekki eins skemmtileg og ég helt að hun myndi vera. Ég var farin að fá smá áhuga á því að kynna mér betur gerð smørebøds en ég held að mig langi það ekkert sérstaklega núna. Þetta var samt ekkert leiðinlegt, bara ekki eins áhugavert og ég hélt. Við vorum látin verka Rauðsprettu og elda hana. Gera dressingu úr majonesi sem við áttum svo að bragðbæta. Hún mælti til dæmis með því að setja smá aspas safa út í eða tómatsósu. Okkur Arnari fannst nú ekkert nýtt að búa til Kokteilsósu. Við röðuðum þessu svo á brauðsneið ásamt grænmeti og hrognum. Fengum svo að borða þetta þegar við vorum búin. Þetta var alveg ágætt, en samt ekkert spes:$
Á miðvikudaginn var ég svo í bakaríinu. Það var ótrúlega gaman:!::D Við bjuggum til brauð og svo gerðum við marsipan muffins sem við skiptum í þrjár mismunandi bragðtegundir af eigin vali. Appelsínumuffins er núna í uppáhaldi hjá mér. Þær eru ótrúlega góðar og svo skemmtilega gular á lítinn. Við notuðum svona sérstakt appelsínuþykkni sem við settum saman við degið. Við fengum sem sagt að smakka afreksturinn :D 
Á fimmtudaginn var ég svo í þjóninum. Versti dagurinn til þess að vera í þjóninum þars sem að það var sameiginlegur matur með öllum í grunnnáminu. Við fegnum sem sagt að dekka upp salinn, raða borðum og stólum, setja dúka og servíettur og sjá um mataborðið og að alltaf væri nóg á því. Svo áttum við að hafa eitt borð hvert til þess að sjá um, en við áttum að taka diskana og það af borðinu þegar þeir sem sátu við það voru búnir að borða. Ég var svo heppin að kennararnir settust við mitt borð. Þeir voru svo duglegir að þeir tóku diskana sína sjálfir og fóru með þá í uppvaskið. Þannig að ég þurfti lítið að gera, en hjálpaði bara hinum í staðin. En við fegnurm að borða síðust, sem sagt þegar allir aðrir voru búnir að borða. Og þar með var ýmislegt góðgæti búið, en það var nú til nógur matur svo það var allt í lagi. Ég borðaði bara meira af sætabrauði og rúnstykkjum í staði:s
Okkur var svo skipt niður í aðra hópa og verðum í þeim þangað til skólanum líkur. Núna er ég sem sagt með öllum þeim sem ætla að vera bakarar í hóp og taka grunnnámið á 20 vikum eins og ég. Við erum passlega stór hópur svo ég held að það verði bara fínt að vinna með þessum krökkum. Mig er farið að hlakka ótrúlega mikið til að byrja á fullu í bakaríinu. Fékk samt að vita af einum kennaranum að ég ætti nú ekki eftir að mikna á þvervegin á því að vera í þessum skóla. En ég var að spurja hana í sambandi við þvott á kokkafötunum mínum því það eru engar merkingar á þeim og ég vildi ekki taka neinar áhættur með þau þar sem þau kostuðu alveg sitt. Mér fannst þetta komment bara pínu findið enda var þetta allt á léttu nótunum:D

Sólin er búin að skína alla vikuna. Í dag er hins vegar rigning og það á að rigna alla helgina, eins og svo oft áður. Alveg ótrúlegt hvað þessi rigning er gjörn á það að vera yfir helgarnar og svo skín sólin á virkum dögum á meðan ég er í skólanum.
Við Ernir fengum ótrúlega flott garðhúsgögn að láni, eða við erum eiginlega bara að geyma þau:D Þetta eru viðarhúsgögn í góðu merki og kosta víst sitt. Þau hafa hins vegar ekki verið notuð í svolítinn tíma svo við vorum að hreinsa þau og bera í þau. Mig er farið að hlakka svolítið til að geta notað þau. Vona bara að það fari að hætta að rigna allar helgar, því sólin er í garðinum hjá okkur á morgnanna og fram á miðjan dag.

Hafdís vinkona okkar er að koma á mánudaginn. Hún er að fara að flytja hingað í Álaborg og okkur hlakkar mikið til að fá hana:D Hún ætlar að vera hjá okkur í einhverja daga en hún er enn að bíða eftir svari um íbúð. Það verður gaman að fá hana hingað.

En jæja held að þetta sé komið gott í bili
Vona að þið hafið það sem allra best
kv. Tinna Rut

» 12 hafa sagt sína skoðun

10.08.2009 16:42:34 / rutla

Þrumur og eldingar

Það er búið að hellirigna hérna síðan í gærkvöldi (með hléum). Það hefur verið alveg úrhellirigning, þrumur og eldingar. Þrumurnar eru nú stundum svolítið drungalegar og svo koma svona blossar af og til. Hef ekki upplifað þetta oft og fannst rigningin ótrúlega mikil.

Á síðasta mánudag var fyrsti skóladagurinn minn. Ég var búin að fara og skoða skólann með Didda frænda Ernis á föstudeginum fyrir. Það kom líka önnur íslensk stelpa (Andrea) með okkur að skoða skólann. Hún var líka að byrja í skólanum og ætlar í sama nám og ég :D En fyrsti skóladagurinn var svolítið skrítinn, en samt ekki. Þetta var bara að hlusta á kennarana, fá kynningu á skólanum og labba um og skoða í leiðsögn kennara. Fannst pínu eins og ég væri komin í hóp af "krökkum" eða busum því það eru jú margir eða jafnvel flestir að koma beint úr grunnskólunum. 
Okkur var skipt upp í hópa sem við erum svo búin að vera í og verðum í út þessa viku. Ég komst svo að því á öðrum degi þegar það var nafnakall í hópnum mínum að það er íslenskur strákur (Arnar) með mér í hóp. Hann er líka að fara að læra Konditor eins og við Andrea. Þannig að við erum 3 íslensk að byrja þarna núna.
 Fyrstu tvær vikurnar eru svona kynningar vikur þar sem við förum á milli deilda í skólanum og kynnum okkur þær. Fáum praktiskar upplýsingar og svona. Ég er til dæmis búin að fara tvisvar í Eldhúsið og elda. Fyrst hakkbollur og svo kjúklingarétt. Það eru mörg eldhús í skólanum en það er eitt risastórt sem er langur gangur fullur af eldavelum og fylgihlutum. Þar er líka ein dýrasta og flottasta eldavel Danmerkur. En ég fékk nú ekki að nota hana.
 Ég er búin að fara í kjötvinnsluna og búa til rúllupylsu og svo "leverpåsteg" (veit ekki alveg hvernig það er skrifað) og ég get sagt ykkur að það var frekar ógeðslegt að gera þennan fræga rétt dana. Hökkuð svínafita og lifur, svolítið soð, hveiti og mjólkurduft. Kryddað með salt, pipar og þurkuðum lauk. Ég er ekki mjög klíugjörn en ég fann alveg hvernig klían kom upp og ég þarf ekki annað en að hugsa um þetta núna og þá fæ ég klíu. 
Ég er einnig búin að fá að vita allt um það hvað þjónar gera. Okkur var sýnt hvernig maður á að leggja á borð, setja dúkinn, diskana, hnífapörin og vinglösin allt í réttri röð á réttan stað. Svo fengum við að brjóta saman servíettur og tók ég nokkrar með mér heim svo ég gæti hugsanlega munað hvernig á að gera þetta.
Ég er líka búin að fá að vita allt um hvað "receptionist" gera. Við Arnar vorum einmitt að pæla í því hvað það heitir á íslensku? Fólk sem vinnur í afgreiðsunni á hótelum og sér um inn- og útskráningar og allt það.
Á morgun fer ég svo og kynni mér smørrebrød:D Ég held að það verði ótrúlega gaman. Mig hlakkar svolítið til. Á miðvikudaginn fer ég svo í bakaríið:D Þar með verð ég búin að kynna mér allar deildirnar í Food College Aalborg. 

Ernir er svo búin að liggja í leti á meðan ég er í skólanum....eða svona næstum ;) Hann er búinn að vera mjög duglegur og hellulegja hálfan garðinn og gera hann fínann. Núna er bara eftir að fínpússa og klippa trén. Annars var hann að vinna um helgina á hótelinu eins og allar aðrar helgar. Hann er því að vinna þegar ég er í fríi og ég í skólanum á meðan hann er í fríi....

En jæja ætli þetta sé ekki komið gott í bili. Þið megið alveg láta vit af ykkur hérna áður en þið lokið glugganum. Ég er búin að setja fullt af myndum frá því í sumar inn á myndasíðuna mína ef þið hafið áhuga á því að skoða þær :D

kv. Tinna Rut

» 11 hafa sagt sína skoðun

29.07.2009 19:45:18 / rutla

Sumarið 2009

Jahérna það er greinilega langt síðan ég bloggaði þar sem að ég þurfti nokkrar tilraunir til þess að muna lykilorðið mitt hingað inn:!:$:(

En ég er sem sagt komin aftur út til Álaborgar. Sumarið að verða búið hjá mér....

Ég var að vinna í sumar í rækjuvinnslunni heima á Hólmavík. Ég fékk að vera í kössun í allt sumar og skemmti mér vel þar. Vona að fólkið hafi skemmt sér líka af vitleysunni í mér. Ég fór tvo daga inn á rækjuband í nokkra klukkutíma í senn. Og svo fékk ég líka að rifja upp gamla takta í að handpakk og síðasta daginn minn fékk ég að háþrýsitsmúla gólfið inni í sláturhúsi og mála veggina í einu rýminu þar:D 
Strákarnir voru búnir að ía því að mér að ég fengi einhverja pintingu seinasta daginn minn og bjóst ég því við að þurfa að labba heim rennandi blaut. Rétt áður en vinnudagurinn var búinn birtust þeir og tóku upp smúlinn. Þeir hins vegar rétt bleyttu á mér bakið þar sem að þeir sögðust vera svo góðhjartaðir......svo það var ekkert fútt í því.....

Helgarnar í sumar voru vel nýttar og reyndar bara allir dagarnir. Ég gerði alveg helling og komst eins og svo oft áður ekki yfir allt sem mig langaði að gera.
Ég eyddi Hvítasunnuhelginni í Skagafirðinum með móðurfjölskyldunni eins og ég var búin að segja ykkur.  Sjómannahelgin var svo þar á eftir. Það áttu nú að vera einhver skemmtiatriði við bryggjuna en þáttakan var frekar dræm. En ég horfði þó á nokkra hlaupa yfir bretti í sjónum og einn koddaslag. 
Svo kom að einu helginni í sumar þar sem að ég gerði ekki neitt eða það var allavega ekkert að gerast. 
20. júní mætti ég í ullarkjólnum mínum og fínu regnkápunni minni (sem rifnaði svo núna í júlí:() í afmæli í reiðskemmunni. Þar voru frænkur mínar að fagna því að vera orðnar árinu eldri, önnur 20 ára og hin 30 ára :D Það var sungið og skemmt sér vel.
Daginn eftir skeltum við fjölskyldan okkur, nema Gunnar, í Árneshreppinn. Það var yndislegt eins og alltaf. Við fórum í kaupfélagið, í sund og svo í heimsókn til Böddu og Bjössa. Þar fengum við að sjá heimalinga sem vöktu mikla lukku hjá Ísak Loga.
Síðustu helginni í júní eyddi ég á Heydalsár ættarmóti (út frá foreldum afa Sverris) í Bjarkalundi. Það var yndislegt veður alla helgina, sól og blíða. Ég skemmti mér mjög vel og kynntist fleirum ættingjum mínum :D

Hamingjudagar gengu í garð þann 3. júlí og var svaka stuð á Hólmavík þá. En eins og heppnin er alltaf svo mikil í kringum þessa blessuðu hamingju að þá ringdi akkurat á laugardeginum þegar aðalskemmtunin var í kirkjuhvamminum. Ég stóð nú samt undir tjaldi þar sem ég var að selja armböndum sem ég var búin að vera að gera, svo ég slapp nokkuð vel. Það var þrusu stuð og ég skemmti mér konunglega á balli;)
Við fjölskyldan skeltum okkur svo í sumarbústað út í Flatey á Breiðafirði. Gunnar fékk sumarbústað þar í gegnum Orkubúið. Ég var að koma þangað í fyrst skipti og fannst það æði að vera þarna. Við fengum líka æðislegt veður og þó svo að það væri smá vindur þá var alltaf skjól á pallinum hjá okkur:D Og í fyrsta skipti nennti ég að liggja úti og fékk því líka ágætis lit sem ég er mjög sátt við:!::D Á laugardeginum var Bátadagur í eyjunni en þá komu fullt af gömlum bátum siglandi. Það var ótrúlega gaman að sjá alla þessa gömlu báta saman. Við fjölskyldan höfðum það gott í bústaðnum og slöppuðum af á milli þess sem var farið út í göngutúr. Ég eignaðist gjæludýr einn daginn þar sem að heimalingur elti mig um eyjuna en Gunnar fékk hins vegar verri meðferð þar sem að einn daginn kom kría og skeit í hárið á honum. Næsta dag goggaði ein í hausinn á honum. Hann var ekki sáttur og hótaði því að taka eitthvað annað en myndavel með sér að vopni næst þegar hann kæmi í eyjuna:| hehe  Ég fékk nú samt ekki að vera alla vikuna með þeim í bústaðnum og fór heim á þriðjudeginum. Eini dagurinn sem var hvasst og skildist mér á manninum sem var á bátum (fór með Eyjasiglinum frá Stað í Reykhólasveit) að þetta væri mesti öldugangur sem hann hafi lent í með farþega. Enda var enginn smá öldugangur og skoppaði ég aðeins til í sætinu nokkrum sinnum. Fínt að fá að upplifa þetta þó svo að það hafi líka verið mjög gaman að fara í logninu sem var á föstudeginum þegar við fórum út í eyju:D
Bryggjuhátið á Drangsensi var svo 25.júlí. Ég mætti nú heldur seint en náði þó að skoða nokkrar sýningar og svo skemmti ég mér konunglega á kvöldskemmtun og í brekkusöng:D Var hins vegar fyrir smá vonbrigði með ballið, en það jafnar sig fljótt. Gigja og Jón Björn komu á Bryggjuhátíð. Það var svo gaman að hitta þau aðeins:D
Síðustu helginni eyddi ég svo í Reykjavíkinni með mömmu og pabba en þau keyrðu mér út á völl á sunnudagsmorgni. Ég flaug beint til Álaborgar og var ótrúlega ánægð að þurfa ekki að taka tengiflug.

En ég skemmti mér ekki bara vel um helgarna. Ég fór til dæmis til Akureyrar eftir vinnu 16.júní og mætti í útskrift hjá Hafdísi og Unni. Það var æðislegt að komast aðeins á Akureyri. Ég hefði alveg viljað vera aðeins lengur en einn dag þarna þar sem að mér fannst ég ekki geta hitt alla eins og ég vildi, eða ég hitti flesta en bara langaði að geta verið með þeim í svo mikið lengri tíma en raun var. En svona er það víst þegar maður ætlar sér að gera svo margt á einum degi....

Gunnar bróðir slasaðist í byrjun júni. Hann var upp í körfu að losa línu úr staur þegar hann fékk stuð og brendist illa á höndum, þá aðalega á hægri hendi. Sjúkrabíllinn náði í hann í djúpið og svo var hann sendur suður með flugi seinna um daginn. Hann var inni á spítala yfir nótt. Hann slapp sem betur fer vel og eru sárin alveg að vera gróinn svo hann ætti að geta byrjað að vinna fljótlega geri ég ráð fyrir.

En á meðan ég var að njóta þess að vera með öllum heima á Íslandinu góða var Ernri hérna í Álaborg. Hann kláraði skólann 17. júní og fékk frábærar einkannir. Stuttu seinna byrjaði hann að vinna á Hótel Phønix. Hann ætlar því ekkert heim þetta sumarið:s

Síðan ég kom út erum við búin að gera voðalega lítið. Fórum aðeins í Bilka (verslun sem selur allt) og í Jysk (rúmfatalagerinn). Í dag byrjuðum við svo á því að gera garðinn okkar fínann, en við ætlum að bæta við nokkrum hellum og gera hann aðeins flottari.
Skólinn byrjar svo hjá mér á mánudaginn. Mig er farið að kvíða aðeins fyrir en ég veit í raun ekkert út í hvað ég er að fara. Þetta verður samt örugglega fínt svona þegar fyrsta vikan verður búin...

Ég er eflaust að gleyma að segja ykkur eitthvað, en ég held að þetta sé orðið nógu langt svo ég ætla að hætta hér. Set myndir inn á myndasíðuna mína við tækifæri, vonandi fljótlega.

Takk fyrir sekmmtilegt sumar :D
kv. Tinna Rut  


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.06.2009 21:54:51 / rutla

Komin heim

Kannski maður ætti að láta aðeins vita af sér. En eins og þið sjáið hef ég ekki verið dugleg við að skrifa hérna inn. Ég reikna alveg með að það verði svoleiðis í sumar.

Ég kom heim til Íslands föstudaginn 15. maí. Sandra, Ísak og Birgitta sóttu mig á völlinn og svo komu mamma og pabbi um kvöldið. Helginni var svo eytt í borginni. Við komum heim seint á sunnudagskvöldi. Ég var mætt í sveitina um 11 daginn eftir. Ég var í sveitinni í eina viku og hjálpaði til í sauðburði. Það var yndislegt að geta stússast aðeins í fjárhúsunum. Ég fékk að gera heilmikið og naut þess eins vel og ég gat að vera í fjárhúsunum. Kindin "mín" sem ég eignaði mér (en mamma á hana) bar tveimur stórum og flottum lömbum. Mér var svo gefin ein gimbur og er ferlega stoltur eigandi:D Hún er svört með hvíta sokka á afturfótunum, hvítan koll og hvítan kraga öðrumegin á hálsinum. Einnig er lítill hvítur blettur á annari síðunni. Ég á nú samt eftir að finna nafn á hana, en mér dettur vonandi eitthvað sniðugt í hug fljótlega. 

Ég byrjaði að vinna á mánudaginn fyrir viku. Var sett beint í kössun og hef verið þar síðan. Mér fínnst mjög fínt að vera þar og vona að ég verði þar sem mest í sumar.
Annars er bara fínt að vera byrjuð að vinna þó svo að ég vildi alveg hafa meiri tíma eftir vinnu. Er alltaf svo löt eftir að ég kem heim úr vinnunni. En reyni þó að gera eitthvað sniðugt, hreyfa mig, taka til eða eitthvað svoleiðis.

Hvítasunnuhelginni eyddi ég í Skagafirði. Eyþór frændi var að fermast á sunnudaginn. Við vorum með sumarbústað yfrir helgina og var það mjög gaman að vera þarna. Ég reyndi að hjálpa aðeins til við fermingarundirbúninginn en svo var líka afslöppun og skemmtun inn á milli. Skellti mér til Akureyrar á sunnudagskvöldið ásamt frænkum mínum. Það var frábært að koma aftur á Akureyri og mig hlakkar rosalega til að fara þangað aftur og hitta allt fólkið sem ég þekki þar.   
Í gær var svo brunað heim og fór ég snemma að sofa. Mætti svo hress í vinnuna klukkan 6 í morgun. Hressleikinn fór þó eitthvað að dala þegar líða tók á daginn, en óx þó aftur þegar líða tók á seinnihlutann.....

Framundan er svo bara að vinna og reyna að gera eitthvað hérna heima við. Langar svo að kíkja aðeins á Akureyri í kringum 17. júní en þá eru stelpurnar að útskrifast.....

Vona að þið hafið það gott í sumar. Ég kannski læt vita af mér eftir einhverja daga/vikur..... Svo er aldrei að vita nema að ég setji inn nokkrar myndir.

kv. Tinna Rut

» 13 hafa sagt sína skoðun

08.05.2009 10:54:12 / rutla

Aftur komin helgi

Þá er kominn föstudagur. Finnst þetta líða svolítið hratt núna. Held samt að það sé vegna þess að það er svo margt sem ég ætla mér að gera áður en ég kem heim að ég er bara búin að vera að svo ég nái því öllu. Tek mér þó góðar pásur inn á milli og geri ekki neitt. Letin kemur stundum upp í manni og stundum gleymi ég mér alveg í tölvunni þó svo að ég hafi ekkert að gera þar....

Núna er bara vika þangað til ég kem heim á Ísland. Smá spenningur og smá kvíði í bland. Hef aldrei ferðast á milli landa ein en ég held nú samt að ég bjargi mér alveg. Bara að ég rati á rétt terminal og þá verður þetta allt í gúddí:D
Ég er búin að fá vinnu heima í rækjunni í sumar. Ætla að gera mitt besta þar og reyna að hugsa bara jákvætt um þetta allt saman.
Ætla þó að leyfa mér að vera í nokkra daga í sauðburði á Bassastöðum áður en ég fer að vinna. Bara svona af því að sauðburður verður í fullum gangi þegar ég kem heim og þetta er eitt það skemmtilegast sem ég veit um. Vona að ég geti hjálpað eitthvað til og gert eitthvað að gagni:D

Í vikunni er ég búin að gera ýmislegt. Ég fór til dæmis niður í bæ og keypti mér bol. Svona í tilefni af því að ég er búin að fá vinnu;) (er búin að langa í ný föt svo lengi en á aldrei pening til þess að eyða í svoleiðis). Fór með Anton sjarmör út að labba. Við skemmtum okkur vel saman þrátt fyrir smá kulda. Fara í ræktina og reyna að vera dugleg þó svo að mér finnist ég ekki alveg vita hvað ég á að gera þarna annað en að hlaupa. Ég setti umsóknina í skólann í póst. Vona að ég hafi ekki verið of sein að þessu og geti byrjað í ágúst. Og svo fór ég til Vrå í gær með Katrine og Tinu. Þar hittum við alla kennarana og þá nemendur sem voru með okkur þarna fyrir áramót. Það var mjög gaman að hitta alla aftur svona rétt áður en ég fer heim. 

Í dag er svo frídagur hérna í DK, rauður dagur í dagatalinu. Þessi dagur heittir Stóri biðjudagurinn eða eitthvað álíka. Finnst það bínu skrítið þar sem að ég er ekki vön þessu heima á Íslandi. Ernir tekur þó engan frídag. Hann fékk frí í skólanum en mætti bara í staðinn í vinnu í morgun og verður eitthvað fram yfir hádegi. Hann á svo líka að vinna á morgun og sunndaginn. Þannig að það er nóg að gera hjá honum. Svo fer líka að styttast í prófin hjá honum þannig að hann fer fljótlega að undirbúa sig fyrir þau.

Það er búið að vera frekar kallt síðustu daga. Svolítill vindur og rigning inn á milli. Held að ég sé búin að ná mér í smá kvef. Allavega er nefið á mér við það að stíflast. Þetta er nú samt alltaf svona hjá mér nokkrum dögum áður en ég flyg á milli landa, þannig að þetta kom mér svo sem ekkert á óvart. Vona samt að ég nái þessu úr mér áður en ég kem heim.

En í dag á hún elskulega móðir mín afmæli. Vona að hún hafi bakað sér nokkrar kökur til þess að gæða sér á í tilefni dagsins. Það kæmi mér allavega ekkert á óvart:D Þá kannski leynast einhverjir afgangar í frystinum þegar ég kem heim;) 
Til hamingju með afmælið mamma mín og ég vona að þú eigir góðan dag :D

Kveðja
Tinna Rut

» 13 hafa sagt sína skoðun

03.05.2009 09:22:29 / rutla

síðastliðin vika....

Jahérna það er kominn maí. 4 mánuðir búnir af árinu 2009. Mér finnst það pínu skrítið þó svo að mér hafi fundist tíminn svolítið lengi að líða.

Vikan leið kannski aðeins hraðar heldur en vanalega. Enda er ég búin að hafa mun meira fyrir stafni en vanalega. Ekkert merkilegt samt, bara búin að vera duglegri við að fara eitthvað og gera eitthvað. 
Á laugardaginn fyrir viku, kostningardaginn, þá var svona tiltektardagur hjá okkur í Gård 5 (kollegíinu sem við búun á er skipt í garða, húsin liggja þannig að þau mynda hringi). Það var verið að taka til úti í kringum húsin og svo í sameiginlega húsinu þar sem að þvottahúsið og hjólageymslan eru meðal annars. Við Ernir fengum það mikla verk að afþíða frystikisturnar tvær og þrífa þær. Við nenntum nú samt ekki að bíða á meðan ísinn myndi bráðna svo Ernir náði í hárþurkuna mína og bræddi hann þannig. Það var svo einn strákurinn þarna sem kom og sá hvað við vorum að gera og fór greinilega að segja frá því við þá sem voru að vinna úti því það komu alveg nokkrir bara til þess að kíkja á okkur. En þeim fannst þetta það spennandi að hárþurkan var eiginlega bara tekin af Ernir og þeir gerðu þetta fyrir okkur. Ég fékk þó að þrífa kisturnar, þeim fannst það ekki jafn spennandi;)
Við skelltum okkur svo niður í bæ eftir þrifin og hittuð Kidda frænda Ernis, Eydísi, Örn og Gerhard. Við fórum á eitthvað safn, en það var einhver háskólakynning þar og svo röltum við um bæinn í blíðunni og fengum okkur ís. Um kvöldið var svo kostningavaka, en þar sem að það er tveggja tíma munur á klukkunni hér og á Íslandi þá byrjaði hún svolítið seinnt. Við gátum sem sagt horft á Stöð 2 í gegnum Vísi.is og var það bara fínasta skemmtun:D

Ég fór á fimmtudaginn í bæinn. Þar kíkti ég meðal annars í fatabúð sem var verið að opna (kl 12 á fimmtudaginn). Ég hef aldrei séð annað eins:!: Búðin var full af stelpum sem flestar voru með nokkrar flíkur í fanginu. Það voru tvær langar raðir þarna, ein að afgreiðsuborðinu og önnur að mátundarklefunum. Og svo stóðu stelpur úti í hornum og bak við hillur að máta föt. Mér fannst þetta pínu svona eins og það væri keppni um hver næði flíkunum, eins og svangir úlfar að keppast um matinn. Ég náði að skoða margt þarna inni með því að smeygja mér á milli.  Ákvað samt að ég nennti ekki að skoða neitt allt of vel og ætla því að kíkja fljótlega aftur þegar það er ekki alveg svona mikið að gera þarna. Sá svo þegar ég var að fara út að það var ein sem ætlaði að fara með barnavagn inn, en það var bara ekki séns að hún gæti það fyrir fólki. 

Á föstudaginn fór ég í göngutúr með hann Anton Bjarna svo að Kolla gæti lært undir próf. Það var mjög gott veður svo það var gott að hafa eitthvað að gera úti. Við Anton fórum og róluðum og skoðuðum okkur um í garðinum sem er hérna rétt hjá. Það var mjög gaman hjá okkur:D
Eftir að ég skilaði honum af mér skelltum við Ernir okkur í ræktina. Ég er alveg að fara að fíla þetta betur heldur en ég gerði fyrst. Fæ þó stundum pínu kjána tilfinningu, en vonandi hverfur það fljótlega.

Í gær var ég svo ótrúlega dugleg. Ég tek mig stunum til og geri alveg ótrúlega margt. Ernir fór að vinna í gær klukkan 8 og var svo að koma heim um 4. Og á meðan tók ég til og þreif íbúðina, fékk mér göngutúr í búðina í æðislegu veðri, 18°C sól og nánast logn:D. Setti í þvottavélar og bakaði köku og kryddbrauð:D 
Erni fannst ég pínu skrítin að geyma ekki eitthvað til dagsins í dag, því hann er líka að vinna núna. Ég sagði honum að ég gæti þá bara legið með tærnar upp í loftið í dag, en ég held geri það nú samt ekki. Allavega ekki í allan dag;)

En ég held að ég sé búin að skrifa nóg hérna í dag. Skirfa kannski aftur í næstu viku (viku millibil, er það ekki bara fínt?). Annar er ég búin að banta mér flug heim til Íslands og það er nú ekki langt þangað til það er. 

Vona að þið hafið það gott
kv. Tinna Rut

» 10 hafa sagt sína skoðun

23.04.2009 12:18:30 / rutla

Gleðilegt sumar :)

Já nú er sumarið vonandi komið til Íslands. Við hérna í DK höfum fengið að njóta þess aðeins lengur. Það er búið að vera sól og blíða nánast á hverjum degi í marga marga daga:D
Skildist að það hafi verið hvít jörð þegar Hólmvíkingar vöknuðu í morgun. En ég vona bara að það sé fyrirboði um gott sumar ;) Það er nú samt alveg týpíst að það sé snjór á sumardaginn fyrsta. Og svo kemur líklega maí-fret....

Af okkur er svo sem mjög lítið að frétta. Við erum ekki búin að gera neitt sérstakt síðan ég skrifaði seinast. Ernir hefur verið í skólanum og svo höfum við bara verið eins og vanalega fyrir framan tölvur og sjónvar:$ Fórum reyndar í gær ásamt Birni og keyptum okkur kort í ræktina:D Við púluðum svolítið, allavega lak þónokkur sviti af okkur. Áætlunin er svo að fara nokkra daga í viku svona til þess að byrja með.... Við allavega reynum að vera dugleg svona svo við sitjum ekki bara heima og söfnum spiki. Maður hefur líka gott af því að hreyfa sig svolítið:!:;)
Mér finnst samt alltaf jafn kjánalegt að vera í ræktinni eða mér líður alltaf jafn kjánalega þegar ég fer í ræktina. Það er alltaf svo mikið af fólki og eitthvað. Kannski er það bara af því að mér finnst ég ekki kunna á tækin og hvernig maður á að æfa svo útkoman verði sem best. Finnst alltaf best að fara eitthvað út að skokka þar sem ég get bara verið í friði...helst út í sveit. Finnst óþæginlegt að vera að skokka í íbúðarhverfi eða þar sem að er mikil umferð...
En ég vona að þetta komi með tímanum. Maður hættir kannski að vera svona óöruggur með sjálfan sig eftir nokkur skipti.

Fór í viðtal hjá vinnumiðluninni í dag. Það var bara verið að skoða hvað ég gæti gert og hvort ég hafi áhuga á því að fara í skóla og svona.....hvert framtíðarplanið er. Og svo hvort það er ekki allt í lagi hjá mér og svona, þá meina ég með heilsuna og hvort ég væri nokkuð að lifa á götunni og þess háttar. 
Ég var pínu stressuð fyrst, en svo var þetta ekkert mál og ég spjallaði við manninn í svolítinn tíma.
Er einnig búin að baka kryddbrauð og skúffuköku í dag. Setja í þvottavelar og nú hangir þvotturinn úti á snúru:) Veðrið er yndislegt svo ég held ég fái mér fljótlega göngutúr í búðina.

Njótið sumarsinns:!::D

Kv. Tinna Rut

» 11 hafa sagt sína skoðun

16.04.2009 14:23:09 / rutla

Sálargæði gefa andlitsfegurð

...var málshátturinn í ár...

Hef ekki haft mig í það að skrifa eitthvað hérna inn. Hef eiginlega ekki nennt því og hugsa alltaf "æi ég geri það á morgun"........á morgun segjir sá lati:!:

Páskarnir voru fínir, öðruvísi en finir. Við gerðum nú samt voðalítið þessa daga sem Ernir var í fríi. Okkur var boðið í íslenskan lambahrygg til Didda á föstudaginn langa. Það var alveg þriggja rétta máltíð og svo var setið og spjallað langt fram á kvöld. Á laugardaginn fórum við svo út að borða á Jensen´s bofhus og fengum þar steik.
Við eyddum svo pákadeginum með því að fara á hersafn með Kidda frænda Ernis og fleirum íslendingum. Það var mjög gaman og við fengum góðan göngutúr í æðislegu veðri, sól og hiti. Um kvöldið eldaði ég svo hamborgarahrygg fyrir þá bræður. Það gekk alveg ágætlega þó svo að þetta hafi ekki verið eins og hjá mömmu. En þetta hlýtur að koma með æfungunni. 
Við Ernir opnuðum svo pákaeggin annan í páskum. Við fengum nefninlega óvæntan pakka frá mömmu með tveimur Nóa pákaeggjum:D Og þar sem að ég lofaði henni að láta mitt ekki rykfalla þetta árið þá ákvað ég að opna mitt bara strax. Og er komin vel á veg með það.....

Það er búið að vera æðislegt veður hérna. Reyndar ekki alltaf sól en samt hiti þrátt fyrir það. Í dag er reyndar búið að vera svolítill vindur en það gerir ekkert til svona stöku sinnum. 
En það er alveg greinilegt að það er komið sumar hérna. Og ég get sko alveg sagt ykkur það að lífríkið er miklu meira hérna en heima. Við Ernir fórum út í garðinn okkar um daginn að laga til. Ég reytti svolítinn arfa og það var allt morandi í maurum. Mér fannst það ekkert allt of skemmtilegt, sérstaklega ekki þegar þeir koma inn til mín. Hef reyndar ekki verið vör við roðamaur, sem er bara mjög gott. Það voru líka alskonar dýr sem ég hef ekki séð áður.
Í gær var ég svo eitthvað að gera við kommóðuna okkar þegar þessi líka stóra könguló birtist við skálina sem er uppá kommóðunni. Úff mér brá svo....þetta var nú samt sem betur fer bara svona lítil með rosalega langar lappir. Mér finnst ekkert gaman af köngulóm og finnst mér það mjög stór galli hvað það er mikið um þær hérna. Ohhh finnst þær svo ógeðslegar þó svo að ég sé ekki hrædd við þær. Jæja komið gott af þessu pöddutali....

Framundan er svo baraaa..............ummm................já þetta vanalega. Þrýfa, versla í matinn, hanga í tölvu og leita að vinnu........spennandi...:$

Pabbi minn á afmæli í dag og langar mig til þess að óska honum til hamingju með það:D Vildi að ég gæti verið heima núna og hámað í mig kökurnar sem mér skilst að sé búið að baka í tilefni dagsins. En mig er þó aðalega farið að langa til þess að hitta fólkið mitt...

Til hamingju með daginn pabbi minn :D

Vona að þið hafið það rosalega gott
kv. Tinna Rut

» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16